Domain
Threads by month
- ----- 2024 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2023 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2022 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2021 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2020 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2019 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2018 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2017 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2016 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2015 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2014 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2013 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2012 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2011 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2010 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2009 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2008 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2007 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2006 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2005 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2004 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2003 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2002 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2001 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
- June
- May
- April
- March
- February
- January
- ----- 2000 -----
- December
- November
- October
- September
- August
- July
October 2003
- 5 participants
- 2 discussions
Ágætu félagar
Eins og menn vita hafa lén verið skráð frá upphafi í mjög
takmörkuðu stafamengi (þ.e. tölustafir 0-9, bókastafir úr
enska stafrófinu a-z og bandstrikið "-" ). Ástæða þessarar
takmörkunar er/var auðvitað sú að þessi tákn eru sameiginleg
öllum (flestum) lyklaborðum um heim allan og þar sem netið
er alþjóðlegt hefur þótt eðlilegt að netföng þess væru að
sama skapi alþjóðleg.
Nú er þetta að breytast og stöðugt koma fram háværari kröfur
um að menn geti notað eigin tungumál við að skrá netföng og
þar með að lén skuli geta innihaldið stafróf eigin tungumáls.
Nýlega var lokið við að setja fram RFC (tillögur að stöðlum)
um hvernig skrá skuli lén úr mun stærri stafamengjum en nú er
mögulegt með ASCII menginu.
Eftirfarandi eru RFC sem aðalega fjalla um þetta:
RFC 3454 "Preperation of Internationalized Strings"
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3454.txt>
RFC 3492 "Punycode: A Bootstring encoding of Unicode
for Internationalized Domain Names in Applications (IDNA)"
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3492.txt>
RFC 3491 "Nameprep: A Stringprep Profile for Internationalized
Domain Names (IDN)"
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3491.txt>
RFC 3490 "Internationalizing Domain Names in Applications (IDNA)"
<http://ftp.rhnet.is/pub/rfc/rfc3490.txt>
-- 0 --
Í ljósi þessa þurfum við að huga að hvernig við gerum
mönnum kleyft að skrá lén á íslensku undir .is, þ.e. hvernig við
bætum séríslensku stöfunum við í stafamengið sem nota má í íslensk lénanöfn.
Tæknileg útfærsla á þessu er í raun mjög einföld. Í DNS eru aldrei og verða
ekki skráð nein lén með séríslenskum stöfum. Nöfnin eru einfaldlega umkóðuð
yfir í svk ACE kóðun ("ASCII Compatible Encoding") og skráð sem slík (sjá
ofangreind RFC). IANA úthlutaði fyrr á þessu ári sérstökum kóða 'xn'
til að merkja þessa umkóðun og munu öll lén sem skráð eru skv þessu
kerfi byrja á 'xn--'.
Aðili sem skráir t.d. lénið 'þjóðarlén.is' hjá ISNIC fær í raun skráð
í DNS lénið 'xn--jarln-esa9bxa1h.is' sem er ACE kóðun sem samsvarar
léninu 'þjóðarlén.is'. Ljóst er að fyrst um sinn verður notagildi léna
með slíkum séríslenskum stöfum lítið, þar sem búnað til að
þýða þarna á milli vantar í flest notendaforrit. Sú staðalútfærsla
sem ofan á varð gerir ráð fyrir að notendaforrit/stýrikerfi sjái
um að þýða lénnöfn yfir í ACE kóðun áður en flett er upp í DNS.
Fyrst um sinn verður því sá sem vill senda póst til 'notandi(a)xn--jarln-esa9bxa1h.is'
sjálfur að nota í staðinn til 'notandi(a)xn--jarln-esa9bxa1h.is' þar sem líklegt
er að póstkerfi viðkomandi samþykki ekki 'notandi(a)xn--jarln-esa9bxa1h.is' sem löglegt
netfang, og enn síður sjá um að þýða þarna á milli.
-- 0 --
Í tengslum við innleiðingu séríslenskra lénnafna hjá okkur eru nokkur
atriði sem gaman væri að menn veltu fyrir sér og kæmu með athugasemdir
við.
(1)
Fyrst mætti auðvitað spyrja hvort við ættum yfirhöfuð að gera þetta?
Þessi lén koma hvort eð er ekki til með að virka vel til að byrja með
og er þetta ekki bara aukakostnaður fyrir íslendinga sem nú þegar eru
með lén án séríslenskra stafa?
Það er mat ISNIC að ekki verði hjá því komist að skrá lén með séríslenskum
stöfum undir .is. Brátt verður mönnum boðið upp á slíkt í almennu
lénunum og fjöldi opinna þjóðarléna munu bjóða upp á slíkt. Við viljum
síður neyða þá sem vilja lén með séríslenskum stöfum að skrá þau
utan .is. Líklega eru u.þ.b 30% íslenskra léna þannig að þau væru
með séríslenskum stöfum en ekki er gott að segja hversu mörg þeirra
yrðu stofnuð.
(2)
Ofangreindir staðlar um útfærslu á þessum lénum gera ráð fyrir UNICODE
stafamenginu <http://www.unicode.org/charts>. Það þýðir í raun að við verðum
að velja hvaða stafi við viljum leyfa í íslenskum lénum. Gefin hafa
verið út BCP á vegum CENTR og ICANN þar sem rök eru færð fyrir því að
takmarka leyfilega stafi við þá sem notaðir eru innan viðkomandi lands.
Sjá t.d. <http://www.icann.org/general/idn-guidelines-20jun03.htm>.
Þetta er gert til að lámarka líkur á ruglingi þegar mjög líkir stafir
eru skráðir, og til að minnka þörf fyrirtækja og einstaklinga til að
skrá mörg lén til að ná yfir þekkt merki sín.
ISNIC leggur til að við takmörkum skráningu léna undir .IS við íslenska
stafi eingöngu, þ.e. þæðö/ÞÆÐÖ áéýúíó/ÁÉÝÚÍÓ
(3)
Hvernig á að hefja þessa úthlutun? Skiptar skoðanir eru á því hjá þeim
sem undirbúa að taka upp þjóðleg lén um hvernig skuli standa að þvi
að byrja úthlutun. Í grunninn eru tveir möguleikar;
a að skrá þessi lénum á nákvæmlega sama hátt og við skráum lén í dag
þ.e. "fyrstur-kemur-fyrstur-fær" eða
b að viðurkenna þá staðreynd að þeir sem upphaflega sóttu um lén
án íslenskra stafa hefðu gjarnan viljað fá þau *með* íslenskum stöfum
ef þeim hefði staðið það til boða.
ISNIC leggur til að við gerum þetta samkvæmt síðari kostinum en með
ákveðnum takmörkuðum yfirgangstíma (t.d. 6 mánuðir). Þetta er í raun
mjög einföld leið fyrir okkur. Þegar við fáum beiðni um skráningu á
þjóðlegu léni (þ.e. með íslenskum stöfum), þá umbreytum við nafninu
skv eftirfarandi töflu:
þ -> th á -> a í -> i
æ -> ae é -> e ó -> o
ð -> d ý -> y
ö -> o ú -> u
Ef rétthafi á léninu sem út kemur í þessari umbreytingu er sá hinn sami
(sama kennitala) og á hinu umbeðna þjóðlega léni (eða ef umbreytta lénið
er ekki skráð) þá er lénið veitt. Annars ekki.
Sem dæmi, ef aðli sækir um lénið 'þjóðarlén.is', þá er athugað hver rétthafi
lénsins 'thjodarlen.is' og ef það er sami aðili, eða ef 'thjodarlen.is' er ekki
skráð þá skráir ISNIC lénið 'þjóðarlén.is' og setur 'xn--jarln-esa9bxa1h.is'
inn í DNS. Sé lénið 'thjodarlen.is' ekki til veitir skráning lénsins
'þjóðarlén.is' engann rétt á því nafni þ.e. rétturinn er *ekki* gagnkvæmur.
Að yfirgangstíma loknum verður enginn greinarmunur gerður á lénum með eða
án íslenskra stafa.
(4)
Ýmss önnur álitamál munu auðvitað koma upp við innleiðingu þjóðlegra
lénnafna og gefa þarf ISNIC og hýsingaraðilum tíma til að aðlaga eigin kerfi
(svo sem skráningarkerfi, bókhaldskerfi o.s.frv.) að nýjum gerðum léna.
ISNIC býst við að byrja að bjóða upp á skráningu léna af þessu tagi snemma
á næsta ári, ef ekkert óvænt kemur í veg fyrir það og það tekst að ljúka
nauðsynlegum breytingum á skráningarkerfum.
-- 0 --
Látið endilega heyra í ykkur. Okkur er mjög í mun að fá álit sem flestra
á framhaldinu, hvernig standa skuli að innleiðingu IDN undir .IS. Sendið
ykkar tillögur/athugasemdir á 'domain(a)lists.isnic.is' -- til þess er þessi
listi.
--
Marius
RFC - "Request For Comment"
BCP - "Best Current Practice"
ICANN - "Internet Corporation for Assigend Names and Numbers"
IANA - "Internet Assigned Numbers Authority"
CENTR - "Council of European National Top-Level Domain Registries"
IDN - "Internationalized Domain Names"
6
15
31 Oct '03
Ágætu netverjar,
óskað er eftir athugasemdum vegna meðfylgjandi tillagna um breytingar á
reglum um úthlutun og stjórnun á léninu .is
Meginástæður breytinga eru þessar:
a) Árleg léngjöld verða reikningsfærð á þann máta að eindagi greiðslu
árgjalds miðast við afmælisdag lénsins. Reikningar verða sendir út
tímanlega fyrir afmælisdag léns. Léni verður lokað hafi greiðsla
ekki borist á eindaga. Breyting miðast við lén sem eiga afmæli
eftir 31. desember 2003.
b) Opnað verður fyrir skráningu á lénum um vef ISNIC 1. janúar 2004.
Skráning verður alfarið um vefinn frá þessum tíma og hætt verður
að taka við umsóknum bréfleiðis eða um fax.
c) Flutningsgjald verður ekki innheimt eftir 1. janúar 2004 sé flutningur
framkvæmdur um vef ISNIC.
d) Þann 1. júlí 2004 verður opnað fyrir skráningu léna sem innihalda
séríslenska stafi.
Mismunandi er hvenær ætlað er að breytingar taka gildi.
Kv,
Helgi Jónsson
--
[Skýring
Til að gera mögulegt að ská lén skv. IDN RFC reglum, lén með séríslenskum
stöfum. Þessi breyting verður að taka gildi strax vegna tæknilegra áhrifa
IDN RFC reglna. Nánari ákvæði ganga í gildi 1. júlí 2004 þegar farið verður
að skrá lén með séríslenskum stöfum. Sjá nánar grein 14. Bráðabirgðaákvæði.
]
Grein 1.1.1 - Breytt grein gildir frá og með 20. október 2003
Fyrir breytingu:
1.1.1. Lén
Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr
enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða
enda á bandstriki. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra
en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum
í léni.
Eftir breytingu:
1.1.1. Lén
Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr
enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik. Lénnafn má ekki byrja eða
enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik í þriðja og fjórða
staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra
en 66 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum
í léni.
--
[Skýring
Ný regla hvað varðar uppfærslu upplýsinga um aðsetur er að finna
í grein 1.1.16.
]
Grein 1.1.6. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003
Fyrir breytingu:
1.1.6. Greiðandi
Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna
léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra. Við skráningu á
greiðanda er nafn hans skráð eins og það er í þjóðskrá hverju sinni.
Ennfremur getur ISNIC uppfært aðrar upplýsingar um greiðanda samkvæmt
þjóðskrá þar sem það á við. Slík uppfærsla er þó eingöngu framkvæmd í þeim
tilfellum er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru
endursend til ISNIC.
Eftir breytingu (athugasemd: sjá einnig nýja grein 1.1.16.):
1.1.6. Greiðandi
Hlutverk greiðanda er að taka við tilkynningum/reikningum vegna
léngjalda og ber hann jafnframt ábyrgð á greiðslu þeirra.
--
[Skýring
Skilyrt uppsögn hefur ekkert gildi eftir að umsóknir færast yfir
á vef. Við umskráningu á vef tilgreinir stjórnunarlegur tengiliður
nýjan rétthafa með því að setja inn nýjan rétthafa.
]
Grein 1.1.16. - Grein fellur niður 1. janúar 2004
Fyrir niðurfellingu:
1.1.16. Skilyrt uppsögn á léni
Skilyrt uppsögn felur í sér beiðni um umskráningu til nýs aðila.
Við uppsögn þarf kennitala nýs aðila að koma fram. Nýr aðili verður að sækja
um lénið innan tveggja (2) daga frá því að skilyrt uppsögn berst til ISNIC.
Komi ekki umsókn um lénið innan tilskilins frests er uppsögn ógild og lén
áfram skráð á fyrri aðila.
--
[Skýring
Áréttað er hvaða ábyrgð tengiliðir hafa. Þá er bent á að ISNIC
uppfærir nöfn rétthafa skv. þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá þar sem
það á við.
Tengiliðir geta haft annað aðsetur en það sem tilgreint er í
þjóðskrá. Í þeim tilfellum er ISNIC fær endursenda tilkynningu
getur ISNIC uppfært upplýsingar um heimilisfang.
]
Grein 1.1.16. - Ný grein tekur gildi 1. desember 2003
1.1.16. Upplýsingar í rétthafaskrá
Rétthafi og tengiliðir bera ábyrgð á að réttar upplýsingar séu skráðar í
rétthafaskrá ISNIC.
ISNIC uppfærir nöfn íslenskra rétthafa og tengiliða samkvæmt þjóðskrá og
fyrirtækjaskrá daglega.
ISNIC áskilur sér rétt til að uppfæra heimilisföng hjá íslenskum
rétthöfum og tengiliðum til samræmis við þjóðskrá eða fyrirtækjaskrá
í þeim tilfellum þegar gögn send í bréfapósti eru endursend til ISNIC.
--
[Skýring
Ástæðulaust að vísa í umsóknareyðublað þar eð umsóknir fara
um vef ISNIC frá 1. janúar 2004.
]
Grein 2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
2.1. Almennt
Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni skal senda umsókn til ISNIC
ásamt greiðslu á stofngjaldi. Við umsókn skal notast við umsóknareyðublað
ISNIC eða sækja um á þann rafræna máta sem ISNIC viðurkennir. Umsækjandi
skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila í samræmi
við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður að hafa
íslenskt ríkisfang.
Eftir breytingu:
2.1. Almennt
Umsækjandi sem óskar eftir að fá úthlutað léni gengur frá greiðslu á
stofngjaldi léns og sækir síðan um lénið á vef ISNIC.
Umsækjandi skal hafa hæfi til þess að skuldbinda sig eða viðkomandi lögaðila
í samræmi við gildandi lög á hverjum tíma. Tengiliður rétthafa léns verður
að hafa íslenskt ríkisfang.
--
[Skýring
Gert er ráð fyrir að gjaldtöku v/flutningsgjald verði hætt frá
1. janúar 2004 að telja í þeim tilvikum er tengiliðir framkvæma flutning
um vef ISNIC. Flutningsgjald verður gjaldfært eftir 1. janúar 2004 sjái
starfsmenn ISNIC um flutning.
]
Grein 5.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
5.1.
Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið
rétthafa léns að senda upplýsingar þar að lútandi til ISNIC.
Breyting á vistun felur í sér flutningsgjald.
Eftir breytingu:
5.1.
Ákveði rétthafi léns að breyta um vistunaraðila þess felur hann tengilið
rétthafa eða tæknilegum tengilið að framkvæma þá breytingu. Flutningsgjald
er aðeins innheimt ef starfsmenn ISNIC sjá um breytingu að ósk aðila.
--
[Skýring
Umskráning verði einfaldlega breyting á kennitölu rétthafa.
Erlendir aðilar breyti einfaldlega upplýsingum um rétthafa.
]
Grein 6.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
6.1. Almennt
Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns.
Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða.
Umskráning er meðhöndluð sem nýskráning af hálfu ISNIC og felur í sér
umskráningargjald. Umskráningargjald þarf að greiða áður en lén er umskráð hjá
ISNIC. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sér um að koma beiðni um
umskráningu til ISNIC.
Eftir breytingu:
6.1. Almennt
Umskráning á léni felur í sér framsal á léni og breytingu á rétthafa léns.
Nýr rétthafi þarf að fullnægja reglum ISNIC eins og um nýskráningu sé að ræða.
Umskráning er framkvæmd af tengilið núverandi rétthafa þannig að kennitölu
rétthafa er breytt í kennitölu fyrirhugaðs rétthafa í rétthafaskrá ISNIC.
--
[Skýring
Aðgerð færð á vef ISNIC.
]
Grein 6.2.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
6.2.1.
Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur farið fram á
umskráningu á léni hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns eða rétthafi sendir
beiðni þess efnis til ISNIC.
Eftir breytingu:
6.2.1.
Innlendur rétthafi sem hefur fengið úthlutað léni getur umskráð lén
hvenær sem er. Tengiliður rétthafa léns framkvæmir slíka breytingu rafrænt.
--
[Skýring
Breytt til samræmis við aðrar breytingar.
]
Grein 7.1. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
7.1.
Öllum umsóknum um stofnun léns, umsóknum um breytingu á vistun,
umsóknum um umskráningu og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla. Greiðslur
geta verið með greiðslukorti, með greiðslu inn á bankareikning ISNIC eða með
öðrum hætti sem ISNIC metur gildan.
Eftir breytingu:
7.1.
Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn.
Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert.
Umsóknum um stofnun léns og vistun á biðsvæði skal fylgja greiðsla.
Greiðslur geta verið með greiðslukorti, greiðslu inn á bankareikning
ISNIC eða með öðrum hætti sem ISNIC metur gildan.
--
[Skýring
Einföldun.
]
Grein 7.3. - Breytt grein tekur gildi 1. desember 2003
Fyrir breytingu:
7.3.
Sú meginregla gildir um greiðslur vegna léna að þær eru óafturkræfar. ISNIC
endurgreiðir þó stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað.
Ennfremur endurgreiðir ISNIC umskráningargjald hafi ekki verið hægt að skrá
nýjan rétthafa í framhaldi af umskráningarbeiðni. Sækja verður um
endurgreiðslu hjá ISNIC.
Eftir breytingu:
7.3.
ISNIC endurgreiðir stofngjald hafi stofngjald verið greitt en umsókn hafnað.
Aðrar greiðslur vegna léna eru óafturkræfar.
--
[Skýring
Lokun léns er framkvæmd af ISNIC sé árgjald ekki greitt á eindaga.
Eindagi greiðslu árgjalds er afmælisdagur léns.
]
Grein 8.2. - Breytt grein tekur gildi 1. janúar 2004
Fyrir breytingu:
8.2.
Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn. Sé árgjald ekki
greitt á eindaga falla öll réttindi rétthafa yfir léninu niður.
Ef reikningur er sendur vegna árgjalds skal miða eindaga við 20. dag þess
mánaðar sem lén var skráð. Annars skal miða eindaga við þann dag þess mánaðar
sem lén var skráð.
Ef reikningur er ekki sendur vegna árgjalds skal ISNIC senda áminningu um
árgjald í tölvupósti til tengiliðs rétthafa lénsins og greiðanda lénsins
mánuði áður en árgjald fellur í eindaga.
Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC.
Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald.
Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur
yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný.
Eftir breytingu:
8.2.
Meginreglan er að afnot af léni miðist við eitt ár í senn.
Eindagi árgjalds er afmælisdagur (stofndagur) léns ár hvert.
Sé árgjald ógreitt á eindaga er léni lokað hjá ISNIC.
Hafi léni verið lokað hjá ISNIC og opnað á ný fellur á það opnunargjald.
Hafi lén verið lokað í 60 daga hjá ISNIC er það afskráð og afmáð, réttur
yfir léni fellur niður og lénið er laust til umsóknar á ný.
--
[Skýring
Úthlutun og skráning léna með séríslenska stafi hefur hingað til ekki verið
leyfð þar eð staðla hefur vantað.
Nú liggja staðlar fyrir er varða meðhöndlun á lénum sem innihalda aðra stafi
en þá sem tilheyra enska stafasettingu. Nokkurn undirbúning þarf þó til þess
að unnt sé að úthluta slíkum lénum. Meðfylgjandi bráðabirgðaákvæði snýr
að úthlutun léna með séríslenskum stöfum.
]
Grein 14. Bráðabirgðaákvæði - tekur gildi 1. júlí 2004
14. Bráðabirgðaákvæði
Bráðabirgðaákvæði vegna skráningar léna sem innihalda séríslenska stafi
Þann 1. júlí 2004 hefst skráning .is léna sem innihalda séríslensku stafina
á ð é í ó ú ý þ æ ö
Rétthafi léns sem er stafsett án séríslenskra stafa hefur forgang í
sex mánuði, tímabilið 1. júlí 2004 til 31. desember 2004, á skráningu léns
með séríslenskum stöfum þar sem er að finna fullkomna vörpun milli léns,
stafsett með séríslenskum stöfum, og léns stafsett án séríslenskra stafa,
sbr. eftirfarandi töflu:
á -> a
ð -> d
é -> e
í -> i
ó -> o
ú -> u
ý -> y
þ -> th
æ -> ae
ö -> o
Skráning á léni með séríslenska stafi veitir ekki rétt á skráningu á
léni sem stafsett er án séríslenskra stafa.
Forgangsskráning fellur niður eftir 31. desember 2004 og gildir þá
reglan "fyrir kemur fyrstur fær" fyrir öll .is lén sem innihalda
séríslenska stafi.
Við gildistöku bráðabirgðaákvæðis, 1. júlí 2004, breytist
grein 1.1.1 og verður:
1.1.1. Lén
Lén er auðkenni á Internetinu. Lénnafn má einungis innihalda stafi úr
enska stafrófinu, tölustafi og bandstrik og íslensku stafina áéýúíó og þæö.
Lénnafn má ekki byrja eða enda á bandstriki, og má ekki innihalda bandstrik
í þriðja og fjórða staf. Lénnafn ásamt endingunni .is má ekki vera lengra
en 66 stafir, ACE umritun léns með íslenskum stöfum má ekki vera lengri en
59 stafir. Ekki er gerður greinarmunur á stórum og litlum stöfum í léni.
--
--
Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons(a)isnic.is
Internet Iceland - ISNIC
Taeknigardur phone +354-525-4950
Dunhagi 5 fax +354-561-0999
IS-107 Reykjavik
Iceland homepage www.isnic.is
2
1