30. ágúst 2002
Breyting á reglum um skráningu léna.
Sú breyting verður gerð 1. október n.k. að greiðandi kemur í stað
tengiliðs greiðanda. Grein 1.1.6. í reglum ISNIC breytist sem hér segir:
1.1.6. Greiðandi
Greiðandi tekur við tilkynningum/reikningum vegna léngjalda og ber ábyrgð
á greiðslu þeirra. ISNIC getur uppfært upplýsingar um greiðanda samkvæmt
þjóðskrá þar sem það á við. Uppfærsla er eingöngu framkvæmd í þeim tilfellum
er bréf, send til greiðanda, komast ekki til skila og eru endursend til ISNIC.
Uppfærð umsóknareyðublöð verða sett á vef ISNIC innan skamms.
Upplýsingar um greiðanda hafa ekki verið skráðar í rétthafaskrá
(whois gagnagrunni) hingað til. Þessu verður breytt fyrir 1. október 2002 og
verður greiðandi tilgreindur fyrir hvert lén í stað tengiliðs greiðanda.
Þá verður tekin í notkun nýr vefur 1. október 2002 þar sem unnt verður
að breyta upplýsingum um rétthafa, tengiliði og greiðanda um vef ISNIC.
--
Helgi Jonsson, framkvæmdastjóri (Manager) hjons(a)isnic.is
Internet Iceland - ISNIC
Taeknigardur phone +354-525-4950
Dunhagi 5 fax +354-561-0999
IS-107 Reykjavik
Iceland homepage www.isnic.is