Á næstunni munu verðar gerðar töluverðar breytingar á isgate.is, vélin verður
stækkuð og allar þjónustur uppfærðar.
Í framhaldi af þessu þá mun ISNIC loka fyrir recursive uppflettingar um þessa
vél og er það gert af öryggisástæðum.
Þetta þýðir að allri sem eru með isgate.is, 193.4.58.51 eða 130.208.165.63 sem
resolver á vélinni sinni, eða forwarder í nafnaþjóni munu ekki framkvæma
uppfletingar rétt nema þessu sé breytt.
Ekki er komin dagsetning á þetta en það verður fljótlega eftir mánaðarmót ef
allt gengur eftir svo ég mæli með að þið framkvæmið þessar breytingar á
uppsetningu véla án tafar ef þess er þörf því við tökum enga ábyrgð á truflun í
rekstri tölvukerfa sem geta orðið vegna þessa.
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli(a)isnic.is