Sælt veri fólkið,
Nú hafa þónokkrir skráð sig á domain(a)lists.isnet.is og tel ég því tímabært að
reyna að vekja upp smá umræðu hér.
Öðru hvoru er verið að ýja að því að reglur INTÍS varðandi úthlutun léna séu
of slakar eða of strangar og langar mig því að óska álits ykkar á því hvað gæti
farið betur.
Þegar líður á getur umræða hér haft mikil áhrif á reglurnar og vona ég þess
vegna að fólk láti allt vaða og ef þið vitið um einhvern sem er með sterkt álit
á þessum málum þá er bara að benda honum á að skrá sig á listann og taka þátt
í umræðunni.
Óli
--
Ólafur Osvaldsson
Kerfisstjóri
Internet á Íslandi hf.
Sími: 525-5291
Email: oli(a)isnet.is