Vinsamlega sjáið til þess að viðskiptavinir ykkar fari að lögum. Útsending þessa tölvupósts er brot á fjarskiptalögum (nr. 81/2003), svo og lögum um húsgöngu og fjarsölusamninga (nr. 46/2000). Nánari skýringar: Lög um fjarskipti, nr. 81/2003, 46. grein, 1. og 2. málsgrein: Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun. Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000, 14. grein, 2. málsgrein: Seljendum vöru og þjónustu sem lög þessi taka til ber, áður en bein markaðssókn er skipulögð, að kanna skrá Hagstofu Íslands yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hafi neytandi óskað eftir því að vera færður í skrána er bein markaðssókn til hans óheimil. ---snip---- Return-Path: <PosturinnPall@svar.is> Received: from giga.snerpa.is ([unix socket]) by mail.snerpa.is (Cyrus v2.1.15-Invoca-RPM-2.1.15-1) with LMTP; Tue, 19 Oct 2004 18:41:02 +0000 X-Sieve: CMU Sieve 2.2 Received: from giga (root@localhost) by giga.snerpa.is (8.12.8/8.12.8/Snerpa - NO SPAM) with SMTP id i9JIf1eA013944 for <XXX@snerpa.is>; Tue, 19 Oct 2004 18:41:01 GMT Received: from svar.is (adsl-12-125.simnet.is [157.157.158.125]) by giga.snerpa.is (8.12.8/8.12.8/Snerpa - NO SPAM) with ESMTP id i9JIewFk013933; Tue, 19 Oct 2004 18:40:59 GMT Content-class: urn:content-classes:message Subject: =?iso-8859-1?Q?Stafr=E6nt_sj=F3nvarp_-_90_r=E1sir_-_0kr=2E-_=E1skrift=21?= MIME-Version: 1.0 Content-Type: multipart/alternative; boundary="----_=_NextPart_001_01C4B60B.251A84DF" Date: Tue, 19 Oct 2004 18:40:45 -0000 Message-ID: <7EEE9BDEDBD20B4786A6A35C548A2176103BE0@svar1.Svar.local> X-MimeOLE: Produced By Microsoft Exchange V6.5.6944.0 X-MS-Has-Attach: X-MS-TNEF-Correlator: Thread-Topic: =?iso-8859-1?Q?Stafr=E6nt_sj=F3nvarp_-_90_r=E1sir_-_0kr=2E-_=E1skrift=21?= Thread-Index: AcS2Cyb+cQzTfEerQ/+0aW6YOTh7JQ== From: "Posturinn Pall" <PosturinnPall@svar.is> To: "Posturinn Pall" <PosturinnPall@svar.is> Stafrænt sjónvarp - engin áskrift - 90 rásir Svar tækni (HYPERLINK "http://www.svar.is/"www.svar.is) býður nú upp á nýja tegund gervihnattamóttakara og móttökudiska sem gera þér kleift að horfa á vinsælustu rásir Bretlands, BBC, og margar fleiri breskar rásir fyrir mun minni tilkostnað en áður hefur þekkst. Af því tilefni býðst þér að kaupa allan búnað sem til þarf á sérstöku kynningarverði eða aðeins 19.990 kr. stgr. eða á 12 mánaða vaxtalausu tilboði, aðeins 1.666kr á mánuði. Ekkert áskriftargjald né annað stofngjald! Nánar: HYPERLINK "http://www.svar.is/tilbod"http://www.svar.is/tilbod Viljir þú ekki fá send tilboð frá okkur í framtíðinni biðjum við þig vinsamlegast að senda okkur tölvupóst á HYPERLINK "mailto:PosturinnPall@svar.is"PosturinnPall@svar.is með titlinum(e. subject): "Afskrá". Til að skrá póstfang á listann þarf viðkomandi að senda tölvupóst á HYPERLINK "mailto:PosturinnPall@svar.is"PosturinnPall@svar.is með titlinum(e. Subject) "Skrá" --- Outgoing mail is certified Virus Free. Checked by AVG anti-virus system (http://www.grisoft.com). Version: 6.0.773 / Virus Database: 520 - Release Date: 5.10.2004 ---snip--- -- Ísak Ben, Kerfisstjóri, http://www.snerpa.is
participants (1)
-
Ísak Ben.