Re: FW: (SPAM Tilkynning) Ráðstefna um Markaðssetningu á Netinu
Kristján: Þetta var sent á oli@rhnet.is og með því að senda upphaflega skeytið á mig ertu að brjóta fjarskiptalög (nr. 81/2003), svo og lög um húsgöngu og fjarsölusamninga (nr. 46/2000). Þú ættir því að endurskoða aðferðir ykkar við útsendingu þessara auglýsinga. Nánari skýringar: Lög um fjarskipti, nr. 81/2003, 46. grein, 1. og 2. málsgrein: Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun. - ATH. Athugið að þarna eru söluaðilar skyldugir til að gefa mönnum kost á því að mótmæla *skráningu*, ekki bara skilaboðunum sjálfum. Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000, 14. grein, 2. málsgrein: Seljendum vöru og þjónustu sem lög þessi taka til ber, áður en bein markaðssókn er skipulögð, að kanna skrá Hagstofu Íslands yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hafi neytandi óskað eftir því að vera færður í skrána er bein markaðssókn til hans óheimil. - ATH. ég er á skrá hjá Hagstofunni yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu. Þorsteinn: Þetta SPAM kom frá IP tölu sem skráð er á Fróða, sbr: inetnum: 213.220.84.128 - 213.220.84.255 netname: IS-FRODI descr: Frodi hf. country: IS admin-c: TG91-RIPE tech-c: TG91-RIPE status: ASSIGNED PA changed: markom@lina.net 20030813 mnt-by: LINANET-MNT notify: noc@lina.net source: RIPE Það að fyrirtæki geti nýtt sér IP tölur ykkar án ykkar vitundar er stór öryggishola og legg ég til að þið endurskoðið öryggismál á netkerfi ykkar. /Óli Þann 10. september 2004, ritaði Kristján Már. Hauksson eitthvað á þessa leið:
Sæll Ólafur
Endlega ekki hengja Fróða fyrir þetta
Veit ekki afhverju þetta merkist sem SPAM, þetta er ráðstefna sem við stöndum fyrir og þau mail sem ég sendu á eru öll í Contacts hjá mér, veit ekki hvernig þú komst þangað. Reyndar sé ég þitt mail ekki þar, getur sagt mér hvaða meil það var sem ég sendi á svo ég geti fjarlægt það?
Biðst auðvitað afsökunar á því að hafa valdið þér ónæði og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að forðast á það gerist aftur.
Góða helgi
Kær kveðja
Kristján Már
________________________________
From: Thorsteinn Gardarsson [mailto:thorsteinn@frodi.is] Sent: fös. 10.9.2004 16:48 To: Kristján Már. Hauksson Subject: FW: (SPAM Tilkynning) Ráðstefna um Markaðssetningu á Netinu
-----Original Message----- From: Thorsteinn Gardarsson [mailto:thorsteinn@frodi.is] Sent: 10. september 2004 16:40 To: 'Olafur Osvaldsson' Cc: 'postmaster@lina.net'; 'abuse-l@lists.isnic.is' Subject: RE: (SPAM Tilkynning) Ráðstefna um Markaðssetningu á Netinu
Sæll Ólafur
Þessi póstur kemur ekki frá Fróða hf heldur frá fyrirtækinu e.c. Software (Íslensk fyrirtæki ehf). Það fyrirtæki er í sama húsi og Fróði hf en engin önnur tengsl eru á milli þeirra annað en það. Eigandi Íslenskra fyrirtækja ehf er Magnús Hreggviðsson
magnus@ec.is
Kveðja Þorsteinn Garðarsson Fróði hf
-----Original Message----- From: Olafur Osvaldsson [mailto:oli@rhnet.is] Sent: 10. september 2004 15:16 To: abuse@lina.net; abuse@frodi.is Cc: postmaster@lina.net; thorsteinn@frodi.is; abuse-l@lists.isnic.is Subject: (SPAM Tilkynning) Ráðstefna um Markaðssetningu á Netinu
Vinsamlega sjáið til þess að sendingar sem þessi hætti svo ekki komi til lokunnar á móttöku tölvupósts frá netum Fróða til RHnet.
/Óli
----- Forwarded message from Randburg <kmh@ec.is> -----
Return-Path: <kmh@ec.is> X-Original-To: XXX Delivered-To: XXX Received: from localhost (localhost [127.0.0.1]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id 1CEAC8A1C6 for <XXX>; Fri, 10 Sep 2004 15:11:06 +0000 (GMT) Received: from aker.isnic.is ([127.0.0.1]) by localhost (aker.isnic.is [127.0.0.1]) (amavisd-new, port 10024) with ESMTP id 22971-03 for <XXX>; Fri, 10 Sep 2004 15:11:00 +0000 (GMT) Received: from durinn.rhnet.is (durinn.rhnet.is [130.208.16.20]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id B4BAA8A1CB for <XXX>; Fri, 10 Sep 2004 15:11:00 +0000 (GMT) Received: from laptop-kmh (ecweb.ec.is [213.220.84.129]) by durinn.rhnet.is (8.12.8/8.12.8/isnic) with ESMTP id i8AFAw7f005241 for <XXX>; Fri, 10 Sep 2004 15:10:58 GMT Message-ID: <3832-220049510151326707@laptop-kmh> Organization: Randburg From: "Randburg" <kmh@ec.is> To: XXX Subject: Ráðstefna um Markaðssetningu á Netinu Date: Fri, 10 Sep 2004 15:13:26 -0000 MIME-Version: 1.0 Content-Type: multipart/alternative; boundary="----=_NextPart_56171381021776151326727" X-Virus-Scanned: by amavisd-new at aker.isnic.is
Hugbúnaðarfyrirtækið Íslensk fyrirtæki ehf (e.c. Software), bjóða í samvinnu við Microsoft, Útflutningsráð Íslands og ÍMARK, til ráðstefnu um markaðssetningu á Netinu. Þessi ráðstefna er ætluð öllum þeim sem koma að rekstri vefsetra með einum eða öðrum hætti.
Ef þú Þarft að skapa verðmæti með margþættum innlendum viðskiptum eða í alþjóðaumhverfi á Netinu, ef þú vilt auka framleiðni þína, bæta þjónustu og nýta þér Netið til fullnustu, þá er þetta staðurinn og stundin: Smáralind, þann 8. október 2004.
Við bjóðum heimsþekkta fyrirlesara sem hafa skapað sér virðingu fyrir þekkingu sína á möguleikum Netsins til markssetningar og beinnar sölu á vöru og þjónustu. Fyrirlesarar eru m.a.
Chris Sherman: aðstoðarritstjóri searchenginewatch.com, og einn af helstu skipuleggjendum Search Engine Strageties, ráðstefna um markaðssetningu á Netinu um víða veröld.
Shari Thurow: markaðs- og vefstjóri Grantastic Designs Inc, sérfræðingur í uppbyggingu vefja fyrir leitarvélar. Hún mun m.a. fjalla um leitarvélavæna vefhönnun og vefi í kviku umhverfi (dynamic).
Michael Holland: framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Microsoft á Norðurlöndum.
Hann mun ræða árangur og framtíðarsýn Microsoft við miðlun upplýsinga á Netinu, markaðssókn á þeim vettvangi ásamt því að ræða leitarvélar. Microsoft ætlar
sér veigamikla hluti á þeim markaði í nánustu framtíð.
Fyrir hverja er ráðstefnan:
? Alla sem reka vefsetur ? Alla stjórnendur ? Markaðsstjóra ? Sölustjóra ? Vefstjóra ? Vefhönnuði ? Vefritstjóra ? Viðskiptastjóra ? Ráðgjafa í upplýsingatækni ? Rekstrarráðgjafa ? Þróunar- og gæðastjóra
Hvað verður rætt:
? Aðferðir til að ná árangri á leitarvélu ? Hönnun og innleiðing kvikra vefsetra (dynamic) ? Árangursrík vefuppbygging ? Leitarvélavæn hönnun vefsetra ? Aðferðafræði við innleiðingu vefsetra ? Vefviðskipti á breiðum grundvelli (eCommerce) ? Árangurrík innsetning á efni og efnisbygging ? Tækni og miðlun upplýsinga í anda Microsoft ? Högun tengla ? Vefverslun og vefauglýsingar ? Greining umferðar
Helstu stuðningsaðilar Íslenskra fyrirtækja við ráðstefnuhaldið eru: Microsoft, Ímark, Útflutningsráð Íslands, Searchwise Inc, Gantastic Designs Inc, Flugleiðir (Icelandair), Iceland Express, Flugfélag Íslands, Íslandsbanki, Smáralind, Icelandic Hotels og Átak bílaleiga.
Hluti stuðningsaðila Íslenskra fyrirtækja ehf. hefur náð framúrskarandi árangri við notkun Netsins sem markaðs- og sölutæki. Þessir aðilar verða þátttakendur í háborði (panel) þar sem Netið verður rætt á víðum grundvelli í lok ráðstefnunnar. Þar verður m.a. metin og ígrunduð framtíðarsýn þessara fyrirtækja í vefmálum
og markaðssetningu á Netinu. Í þessum hluta ráðstefnunnar verðum gestum frjálst að beina fyrirspurnum til fyrirlesara og sérfræðinga við háborðið.
Sjá nánar á www.icelandconference.com
Kær kveðja
e.c. Software Seljavegi 2 101 Reykjavík
Sími 595 5900 ----- End forwarded message -----
-- Olafur Osvaldsson RHnet Systems Administrator Icelandic University Research Network Tel: +354 525-5291 Email: oli@rhnet.is
-- Olafur Osvaldsson RHnet Systems Administrator Icelandic University Research Network Tel: +354 525-5291 Email: oli@rhnet.is
participants (1)
-
Olafur Osvaldsson