Sælir, Guðbjörn S. Hreinsson, Mon, Feb 02, 2004 at 08:34:16AM -0000 :
Ciao,
Sendi þeim einfalda aðvörun eins og ég geri einu sinni (því við næsta spam hætti ég að taka við pósti) við alla sem spamma frá .is lénum, en ég spyr....hversu lengi eigum við að standa í því? Hví ekki bara að blokka póst frá þessum mislukkuðu einstaklingum við fyrsta brot og sjá hvort að menn læra ekki eitthvað á því ? og þá meina ég að allir ISP'ar hér á .is taki sig saman og geri það allir í einu...?
Hins vegar er ég alls ekki svo frábitinn þeirri hugmynd að loka á dót eins og galleri.is við fyrsta brot. Kannski það kenni þessu liði.
Þetta er alls ekki góð hugmynd. Þetta væru eðlileg viðbrögð reiðs netnotenda yfir öllu þessu flæði spampósts en alls ekki eðlileg viðbrögð kerfisstjóra sem tekur faglega á málunum. Þetta er allavega mín skoðun, þó maður haldi oft við fyrstu sýn að þetta sé algjör a***ole þá má maður ekki sleppa sér. Við erum ekki í lögregluhlutverki en við höfum nánast lögregluvald og verðum að höndla það á ábyrgan máta. Hvað haldið þið að lögreglumenn þurfi oft að taka
Þetta er að vísu mjög góður punktur. Ég verð að viðurkenna að ég var frekar fljótur til svars hér í morgun. Hins vegar finnst mér sjálfsagt að loka á við fyrsta brot, EF viðbrögð við kvörtun eru á þann veg að ætla megi að þetta muni halda áfram (sjá t.d. leit.is, sem halda ótrauðir áfram og reyna að rífast við þá sem kvarta).
Langbest er að hafa góða notendaskilmála með skýrum reglum og ákvæðum vegna brota.
Rétt - það er raunar ákveðin pæling að í notkunarskilmála flestra ISPa hér á landi vantar alveg ákvæði um hvernig er tekið á brotum. -- Kristófer Sigurðsson Tel: +354 525 4103 Netsérfræðingur/Network specialist E-mail: ks@rhi.hi.is Reiknistofnun HÍ/University of Iceland Public PGP key: finger -l ks@herdubreid.rhi.hi.is