Ekki er að sjá að póstlistanum að þú fáir þetta magn af ruslpósti, þar eru þá greinilega valdir aðilar sem þið kjósið að birta ásakanir um ásamt persónulegum pósti þeirra. En mig undrar svar þitt, það er ekki saman að jafna snerpu og mitt fyrirtæki. Af svarinu giska ég á að þú sért mjög ungur (að árum) og bendi ég þér því á að þér er frjálst að nota block listann minn þér til stuðnings í baráttunni við ruslpóst, hann er birtur á netinu án ásakana og án þess að birta persónulegan póst í óleyfi sendanda enda væri slíkt hátterni lögbrot auk þess að vera siðlaust, eða eigum við að birta á internetinu nöfn allra sem ásakaðir eru af hverjum sem er um einhver lögbrot ? Mig grunar að svar þitt yrði, miðað við það sem á undan er gengið, eitthvað á þá leið að þú teldir það í lagi í þeim tilfellum sem þú ákveður það sjálfur, annars ekki. Ég er á annari skoðun.
Þann 10/4/2005, skrifaði "Björn Davíðsson" <bjossi@snerpa.is>:
Vá! - plögg plögg... - ef þú vilt í alvöru pissukeppni þá hafnar Snerpa yfir 600 spam-póstum á klukkutíma. :-)
PS: Þið hjá Persónuvernd fáið ekki fleiri afrit frá mér, þið getið skráð ykkur á abuse-l listann ef þið viljið ekki missa af svona 'persónulegum' samskiptum :-) Uppl. á: http://lists.isnic.is/mailman/listinfo/abuse-l
kk, -bd- -- =-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-=-==-=-=-=-= Bjorn Davidsson - R&D dept. Skype: bjossi_lt Snerpa ISP - Isafjordur, Iceland. Tel: 520-4000 bjossi@snerpa.is - www.snerpa.is - GSM: 840-4008 Linux user # 18150 - counter.li.org