ég er buinn að pirra mig mikið yfir leit.is í dag og sendi á þá kvörtun og hótaði að loka öllum póstsendingum frá leit.is við viðskiptavini Skyggni´s ef þeir myndu ekki hætta senda þetta "óumbeðna spam" eins og þeir hafa verið að gera undanfarið með mjög vafasömum aðferðum.
Sama og ég gerði en hef ekkert svar fengið ennþá, ef ekkert hefur komið frá þeim um hádegisbil á morgun verður lokað á allar póstsendingar frá leit.is og þeirra IP neti til ISNIC og RHnet vegna SPAM sendinga.
Hvað með að: - Senda þeim skeyti um að það sem þeir geri sé rangt OG skeyti þar sem við lýsum aðferðum til að gera þetta RÉTT´? - Setja þá á local bl þar til þeir hafa séð sig um hönd
Það er allveg örugglega ekki hlutverk ISNIC nema að því marki að stoppa sendingar frá þeim til okkar, við getum ekki sem úthlutunaraðili léna sagt mönnum hvað þeir mega nota lénin í og hvað ekki.
En er leit.is að misnota upplýsingar í whois grunni ISNic? Ef svo er ber þá ekki ISNic að kæra? mbk,- -GSH