Vinsamlega sjáið til þess að viðskiptavinir ykkar fari að landslögum. Útsending þessa tölvupósts er brot á fjarskiptalögum (nr. 81/2003), svo og lögum um húsgöngu og fjarsölusamninga (nr. 46/2000). Nánari skýringar: Lög um fjarskipti, nr. 81/2003, 46. grein, 1. og 2. málsgrein: Notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að nota tölvupóstfang við sölu á vörum eða þjónustu fyrir beina markaðssetningu á eigin vörum eða þjónustu ef viðskiptavinum er gefinn kostur á að andmæla slíkri notkun tölvupóstfanga þeim að kostnaðarlausu þegar skráning á sér stað og sömuleiðis í hvert sinn sem skilaboð eru send hafi viðskiptavinurinn ekki þegar í upphafi hafnað slíkri notkun. - ATH. Athugið að þarna eru söluaðilar skyldugir til að gefa mönnum kost á því að mótmæla *skráningu*, ekki bara skilaboðunum sjálfum. Lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga, nr. 46/2000, 14. grein, 2. málsgrein: Seljendum vöru og þjónustu sem lög þessi taka til ber, áður en bein markaðssókn er skipulögð, að kanna skrá Hagstofu Íslands yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Hafi neytandi óskað eftir því að vera færður í skrána er bein markaðssókn til hans óheimil. - ATH. ég er á skrá hjá Hagstofunni yfir þá sem vilja ekki að nöfn þeirra séu notuð við markaðssetningu. /Óli ----- Forwarded message from Arnþrúður Karlsdóttir <ak@utvarpsaga.is> ----- Return-Path: <nobody@aker.isnic.is> X-Original-To: XXX@isnic.is Delivered-To: XXX@isnic.is Received: from localhost (localhost [127.0.0.1]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id C7F4A8A1C7 for <XXX@isnic.is>; Sun, 3 Oct 2004 18:21:20 +0000 (GMT) Received: from aker.isnic.is ([127.0.0.1]) by localhost (aker.isnic.is [127.0.0.1]) (amavisd-new, port 10024) with ESMTP id 44294-07 for <XXX@isnic.is>; Sun, 3 Oct 2004 18:21:16 +0000 (GMT) Received: from quasar.skima.is (quasar.skima.is [212.30.200.205]) by aker.isnic.is (Postfix) with ESMTP id E86C68A1C6 for <XXX@isnic.is>; Sun, 3 Oct 2004 18:21:07 +0000 (GMT) Received: from DAGSKRRGER2 ([157.157.157.219] [157.157.157.219]) by quasar.skima.is with ESMTP; Sun, 3 Oct 2004 18:18:14 Z From: Arnþrúður Karlsdóttir <ak@utvarpsaga.is> To: Arnþrúður Karlsdóttir <ak@utvarpsaga.is> Subject: Sparaðu 170.000 kr. fyrir fyrirtækið þitt! Date: Sun, 3 Oct 2004 18:18:00 -0000 MIME-Version: 1.0 Content-Type: multipart/alternative; boundary="----=_NextPart_000_0017_01C4A975.525C1250" X-Mailer: Microsoft Office Outlook, Build 11.0.5510 Thread-Index: AcSpawTyZ7nimrODR1qriDeXAqTTBwABe/qgAAEQMiA= X-MimeOLE: Produced By Microsoft MimeOLE V6.00.2800.1409 Message-Id: <iss.433ab781.47ce.41604266.6ba0a.6e@quasar.skima.is> X-Virus-Scanned: by amavisd-new at aker.isnic.is Afmælistilboð-Auglýsingasprengja- Sparaðu kr. 170.000.- fyrir fyrirtæki þitt. Útvarp Saga FM 99,4 fagnar 1.árs sjálfstæði sínu í rekstri og af því tilefni bjóðum við fyrirtæki þínu að njóta góðs af frábæru tilboði á auglýsingum sem verður til sölu frá mánudeginum 4.október til og með föstudagsins 8. október n.k. Í boði er: 70 birtingar (10 sek) á kr. 40.000.-án vsk. Hver auglýsing birtist þrisvar í endurfluttum þáttum, þannig að í raun er um að ræða 280 birtingar sem ættu að kosta alls kr. 210.000.- Fyrirtæki þitt sparar því kr. 170.000.- með þessu tilboði. Verð miðast við staðgreiðslu og hafið í huga að tilboð þetta er einungis selt dagana 4-8 október n.k. Með afmæliskveðju Arnþrúður Karlsdóttir Útvarpsstjóri Útvarps Sögu Útvarp Saga ehf kt.550803 3480 Húsi Verslunarinnar Kringlunni 7 105 Reykjavík Sími: 533 3943 Banki:0323-26-943 ----- End forwarded message ----- -- Ólafur Osvaldsson Kerfisstjóri Internet á Íslandi hf. Sími: 525-5291 Email: oli@isnic.is